Bolus Wizard - forrit fyrir insúlíndælur
Manage episode 151614811 series 1033425
Insúlíndæla skammtar stöðugan grunnskammt, basal, allan sólarhringinn. Bolus, máltíðarskammtur er gefinn fyrir hverja máltíð. Samspil Basal og Bolus líkir eftir heilbrigðu brisi eins og hægt er.
Insúlínið fer um plastslöngu til líkamans, um plastlegg sem er lagður á 2 daga fresti. Með insúlíndælu er auðvelt að gefa sér margar insúlínsgjafir á dag.
Hægt er að geyma dæluna í buxnavasa, brjóstahaldara, eða buxnastreng. Þegar farið er í sund, eða erfiðar æfingar stundaðar, þá er dælan aftengd, þó aldrei lengur en 2 klst.
Í myndskeiðinu er sýnt hvernig hægt er að stilla insúlíndæluna á marga mismunandi vegu eftir aðstæðum hverju sinni.
Nánari upplýsingar um hvernig hægt er að halda einkennum í skefjum má sjá í myndskeiðinu hér að ofan. Ef þú vilt sækja video-ið í símann þinn, þá geturðu farið inn á sykursyki.blogspot.com og fundið QR kóða
fyrir símann þinn.
Notaðu QR kóða lesara í símanum þínum til að hlaða niður myndbandinu, eða afritaðu slóðina
http://goo.gl/xwN1B
í vafrann þinn.
Fyrir þá sem vilja nota iTunes spilarann, þá er podcast útgáfa fáanleg sem niðurhal á slóðinni : ...(væntanlegt)
Viljum benda á eftirfarandi vefslóðir, en þar má finna ýmsar gagnlegar upplýsingar : - Landspítalinn : http://www.lsh.is
- Dropinn, samtök sykursjúkrabarna : http://www.dropinn.is
- Samtök Sykursjúkra : http://www.sykursyki.is
- Inter Medica : http://www.inter-medica.is - Matís : http://www.matis.is
14 эпизодов